Föstudagur 19. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Nýr forseti Ferðafélags Íslands: „Fljótlega tók að bera á ólýðræðislegum vinnubrögðum forseta“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nýr forseti Ferðafélags Íslands, Sigrún Valbergsdóttir, hefur sent frá sér tilkynningu sem stílaða á félaga í FÍ; kemur þar fram meðal annars að vegna ólýðræðislegra vinnubragða Önnu Dóru Sæþórsdóttur hafi öll stjórnun innan félagsins verið komin í óefni:

„Kæri félagi í Ferðafélagi Íslands, Starfsemi Ferðafélags Íslands hefur verið í miklum blóma undanfarin ár, félagsmenn hafa aldrei verið fleiri, félagsstarfið öflugt og fjárhagurinn sterkur. Undanfarið ár hefur hins vegar hvílt skuggi yfir starfi stjórnar félagsins vegna alvarlegs samskiptavanda á milli forseta og stjórnarfólks annars vegar og forseta og framkvæmdastjóra hins vegar.“

Hún nefnir að „fram til þessa hefur stjórnin talið rétt að greina félagsfólki ekki frá þessum vandamálum í þeirri von að þau væri hægt að leysa með farsælum hætti og með hagsmuni félagsins að leiðarljósi. Því miður er ljóst eftir tilkynningu Önnu Dóru Sæþórsdóttur, um að hún segði af sér sem forseti Ferðafélags Íslands, að svo verður ekki. Stjórn Ferðafélagsins telur rétt að bregðast við þessu með því að upplýsa félaga um aðdraganda afsagnar forseta.“

Bætir við að „í kjölfar þess að Anna Dóra var kosin forseti var ljóst að henni fylgdi kraftur og áhugi á að setja mark sitt á starfsemi félagsins. Naut hún í upphafi stuðnings og trausts allra í stjórn. Meðal annars var ráðist í stefnumótunarvinnu fyrir Ferðafélag Íslands til næstu fimm ára, verklagsreglur um góða stjórnarhætti endurbættar og verkferlar er snerta einelti, kynferðislega eða kynbundna áreitni og ofbeldi uppfærðir.

Fljótlega tók að bera á ólýðræðislegum vinnubrögðum forseta og mikilvæg mál ekki borin undir stjórn eins og vera ber. Stærsti ásteytingarsteinninn var þegar forseti vildi einhliða skipta út framkvæmdastjóra okkar, Páli Guðmundssyni, án þess að fyrir því lægju málefnalegar ástæður og engin formleg tillaga um slíkt hefði verið borin undir stjórn.

Án samráðs ákvað forseti engu að síður að hefja viðræður um starfslok við framkvæmdastjórann og það án vitundar stjórnar.“

- Auglýsing -

Sigrún segir að „þegar stjórnin komst að því, og lýsti sig ósammála, urðu öll samskipti við forseta mjög erfið. Í framhaldi tók við tímabil þar sem framkoma forseta gagnvart framkvæmdastjóra gerði honum erfitt að sinna starfi sínu. Í byrjun júní sl., á háannatíma félagsins, varð stjórn ljóst að ekki yrði búið við óbreytt ástand, enda hagsmunir félagsins í húfi. Stjórn lagði því fram tillögu við forseta þar sem óskað var eftir því að hún héldi sig til hlés um stundarsakir á meðan leitast væri við að leysa samskiptavandann. Forseti hafnaði því líkt og tillögu stjórnar um að leita til utanaðkomandi ráðgjafa til að bæta samskiptin.“

Hún nefnir að „á sama tíma hafði framkvæmdastjóri lagt fram formlega kvörtun vegna eineltis af hálfu forseta og voru nýuppfærðar verklagsreglur Ferðafélagsins í eineltismálum því virkjaðar og leitað aðstoðar utanaðkomandi sérfræðinga. Í kjölfar þess barst stjórn tölvupóstur frá forseta með ávirðingum um að rekstur félagsins væri í ólestri. Þessar fullyrðingar voru alveg á skjön við ræðu forseta á aðalfundi í mars sl. og ársskýrslu stjórnar sem samþykkt var á sama fundi, en þar kom einmitt fram að rekstur félagsins stæði einstaklega vel. Til þess að bregðast við þessum athugasemdum forseta ákvað stjórn að fá álit endurskoðanda sem staðfesti að reksturinn væri traustur og fjárhagsstaða sterk og þau gögn lögð fyrir á stjórnarfundi þann 28. júní sl. Forseti kom einnig með athugasemdir við það hvernig haldið hefði verið á málum sem upp hafa komið innan félagsins í samskiptum einstaklinga, og varða m.a. kynferðislegar áreitni. Gagnrýndi hún ýmist að framkvæmdastjóri hefði eytt of miklum tíma í að sinna þeim málum eða að of lítið væri gert. Á sama stjórnarfundi var því lögð fram greinargerð um hvernig tekið hefði verið á slíkum málum hjá félaginu undanfarin fimm ár. Þar kom m.a. fram:

„Alls hafa komið upp sex mál á sl. fimm árum hjá Ferðafélagi Íslands sem varða kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi eða einelti. Öllum málunum er lokið nema eitt er í skoðun hjá faglegum utanaðkomandi aðila. Málin voru ýmist leyst með sátt á milli aðila, afsögn, skriflegri áminningu, tiltali og tilfærslu í starfi eða samstarfi var hætt eða það ekki endurnýjað. Af þessum sex málum voru fjögur á vettvangi félagsins og tvö utan starfsemi félagsins. Ferðafélag Íslands er með viðbragðsáætlun vegna áreitismála og er hún hluti af stjórnkerfi félagsins og er virkjuð ef mál eru tilkynnt til félagsins.“

- Auglýsing -

Sigrún ljær máls á því í tilkynningunni að „allt þetta ár hefur stjórn Ferðafélagsins leitað allra leiða til að leiða þessi samskiptamál við forseta til lykta með farsælum hætti fyrir félagið. Okkur þykir miður að það tókst ekki. Stjórnin mun engu að síður halda áfram að leita leiða til þess að tryggja frið um starfsemi félagsins og verða þessi mál tekin til umræðu á næsta aðalfundi þess. Í stóru félagi eins og FÍ geta komið upp ýmis álitamál í samskiptum einstaklinga og í þeim tilvikum sem borist hafa kvartanir hefur verið tekist á við þær með faglegum hætti og í samræmi við viðbragðsáætlun. Stjórn Ferðafélags Íslands er skipuð fjölbreyttum hópi sjálfboðaliða úr ólíkum áttum, bæði konum og körlum. Það er ósk okkar að blómleg starfsemi FÍ fái áfram að vaxa og dafna með sameinuðum kröftum okkar allra. Virðingarfyllst Reykjavík, 28. september 2022. Fyrir hönd stjórnar Ferðafélags Íslands, Sigrún Valbergsdóttir forseti.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -