Laugardagur 20. júlí, 2024
8.1 C
Reykjavik

Og hvernig var að deyja? „Það var alveg hræðileg – Haltu lífi eins lengi og þú mögulega getur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Maður er víst ekki maður með mönnum fyrr en maður hefur misst aleiguna“ segir Ómar Stefánsson, myndlistarmaður sem segist hafa haft það eftir fyrrum kennara sínum í Nýlistadeildinni, Magnúsi Pálssyni, í samtali við Freyju Eilíf í Artzine.

Ómar var með sýningu í Berlín á dögunum sem nefnist Flatleikhús fyrir ójafna byltingu Sýningin var frá 12. til 10. apríl í ForA Contemporary Platform á Marburger Strasse 3 í Berlín. Á henni var til sýnis eitt frumeintak af Berlínardagbókunum (Bindi XXIV, 2021), fimmtíu og þrjú málverk sem unnin voru að mestu leyti á árunum 2017-2022 í Berlínarborg og sex skúlptúrar. Þá var útgáfa fyrsta bindi Berlínardagbókanna (Vol. I, 2017) tilbúin á opnun sýningarinnar.

Myndlistarmaðurinn Ómar Stefánsson er mörgum kunnugur fyrir óhefðbundnar leiðir sínar í lífi og list. Sextán ára gamall veitti hann helgarblaði Vísis viðtal sem ungur og myndlistarnemi og galdramaður, en um sama leyti hóf hann nám Mynd- og Handíðaskólanum hvaðan hann útskrifaðist af Nýlistadeild árið 1981. Listferill hans spannar gríðarlegt magn af málverkum, skúlptúrum, ritverkum í útgefnum bókum sem og umdeildum gjörningaverkum sem framkvæmd voru í slagtogi með Art Brut hljómsveitunum Bruna BB og Inferno 5.

Á tæpum 50 ára listferli hefur Ómar verið samkvæmur sjálfum sér, eins og greina má frá ofangreindri tilvitnun úr viðtali Helgarblaðsins Vísis frá árinu 1976. Í verkum sínum vinnur hann stöðugt með ádeilu á framsetningu mannkynssögunnar, vísinda og trúarbragða. Ekkert er eins og það sýnist.

Ekkert er tilviljunum háð

„Við virðumst búa í tilbúnum heimi þar sem ekkert er tilviljunum háð. Það sama er þó ekki hægt að segja um teikninguna í málverkunum Ómars, en þau birtast manni sem villt og ótamin fyrirbæri. Kröftugar og öruggar strokur draga upp heim sem sameinar allar listastefnur 20. aldarinnar og þótt lengra aftur væri litið. Ofsafengið og hömlulaust myndefnið hefur augljós tengsl inn í verk jafn ólíkra listamanna eins og Otto Dix, Hiernonymous Bosch og Hans Bellmer.

- Auglýsing -

Ég veit ekki hvað maður getur sagt.. ég hef verið kallaður klassískur módernisti. Sem er líka smá fyndið. Fyrst kom Art Nouveau, nýi stíllinn og svo kom módernisminn, svo nýi stíllinn og svo nýi nýi stíllinn. Svo er þetta allt orðið klassískur nýr stíll, þannig að ég er mjög klassískur, myndi ég segja, listamaður. Mjög hefðbundinn, miðað við marga,“ segir hann í samtali við Artzine.

Skyndilega dregin á fótunum í gegnum göng

Síður dagbókanna sem Ómar hélt í Berlín eru fylltar með teikningum og klippimyndum sem lýsa, líkt og Flatleikhúsið (hans nýjasta sýning sem var sýnd á dögunum í Berlín), fimmvíðum veruleika listamannsins á tvívíðu formi. Af magni bókanna og útfylltra blaðsíðna er auðséð að listamaðurinn lætur ekki dag líða án þess að hafast handa við klippimyndir, teikningar eða skrif.

Meira að segja á meðan listamaðurinn lá inni á gjörgæslu nýtti hann tímann til listsköpunar og skráningar, þar sem myndir eru settar saman úr matarmiðum spítalans og nær-dauða-reynslunni lýst, sem var á svipuðum meiði og aðrar skrásettar frásagnir af sýnum á dánarbeði. Samkvæmt Ómari var hann skyndilega dreginn á löppunum í gegnum göng, sem þó að lokum leiddu hann aftur inn í heiminn, en ekki burtu í ljósið.

- Auglýsing -

Hans eigin nær-dauða-reynsla verður að uppsprettu endalausra brandara

Og hvernig var að deyja? “Það var alveg hræðilegt… Haltu lífi eins lengi og þú mögulega getur(!)”

Í raun má segja að allur listferill Ómars Stefánsson bjóði áhorfendum upp á hádramatíska Flatleikhússýningu. Listasýningar hans og undirbúningur þeirra,  gjörningaframkomur og afleiðingar þeirra, úrklippur frá yfirlýsingaglöðum greinaviðtölum við hann, sem og frásagnir áhorfenda af afdrifum hans í gegnum tíðina. Allt dregur þetta upp allsvakalega mynd af ævispori listamanns sem fer ótroðnar slóðir og hefur ekki valið sér auðveldustu leiðina í gegnum lífið. Sigrar mæta ósigrum á úfnum hafsjó þess sem þó myndar þokkalega ferilskrá í dag, ójöfn lífsbylting og ekkert er eins og það sýnist.

Baráttan á milli hins góða og illa eins háalvarleg og kómísk og hún getur verið í senn. Jafnvel þegar listamanninum sjálfum er ekki spaug ofarlega í huga, notar hann kímnigáfuna sem verkfæri í frásögn sinni. Hans eigin nær-dauða-reynsla verður að uppsprettu endalausra brandara. Og hvað er rétt og hvað er rangt, hvað er sannleikur,  hvað er blekking.. “heimurinn  inniheldur bara endalausar spurningar og loðin svör

Og er allt svona ruglingslegt að þínu mati? Heyrðist sýningargestur á opnuninni spyrja listamanninn. – Já og jafnvel enn ruglingslegra en ég næ að túlka á þessari sýningu.

Fyrri verk og sýningar Ómars

Ómar Stefánsson er fæddur árið 1960 á Íslandi og hafa verk hans verið sýnd á Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og á fjölmörgum einkasýningum á Íslandi. Þá voru verk eftir hann einnig verið sýnd á Heine Onstadt í Osló, Noregi og á sýningu með Cy Twombly, Joseph Beuys í Gallery Händschin í Basel, Sviss. Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur eiga málverk eftir Ómar sem og Tækniskóli Íslands, Eimskip sem og Illuminati söfnuðurinn í Sviss. Ómar vann einnig verk sérstaklega fyrir lestarstöðina í Basel, Sviss, ásamt listamönnunum Dieter Roth, Dominik Steiger og André Thomkins.

Nánari upplýsingar um Ómar, verk hans og sýninguna má skoða á hér: omarstefansson.com 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -