Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Ómar skýtur á ráðamenn: „Þremur vikum eftir upphaf snjókomunnar er enn ómokað hvar sem litið er.“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ómar Ragnarsson lætur ráðamenn á Íslandi heyra það í nýrri bloggfærslu. Umræðuefnið er snjómokstur eða skortur á honum öllu heldur.

Í bloggfærslu í dag, skrifar fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn Ómar Ragnarsson færslu um lélegan snjómokstur á Íslandi. Ber hann saman aðferð Finna við snjómokstur og svo Íslendinga. Segir hann að Finnar hafi fattað fyrir sextíu árum síðan hvernig best væri að bera sig við snjómokstur og bætti við: „Næstum sextíu árum síðar á landi sem heitir Ísland standa ráðamenn á gati varðandi þetta einfalda lögmál.“

Færsluna má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:

„Stórhríðin 16. desember kom á versta hugsanlegum tíma, þegar frí og skyldudjamm helgarinnar brustu á.

Fyrsti lærdómur: Veðrið tekur ekkert tillit til óska og venja hjá mönnunum, heldur fer sínu fram.

Fyrstu klukkustundirnar ráða mestu eða nær öllu um framhaldið, því að við það að bílar og fólk troði snjoinn niður, harðnar hann og verður þetta líka fína efni í klakann á síðari stigum, sem bæði er miklu erfiðari að fjarlægja, heldur en ef lausamjöllinni er mokað burtu jafnóðum.

- Auglýsing -

Í Helsinki í desember 1966 var hægt að sjá hvernig menn hafa haldið á spilum þar alla tíð; að verða ekki á eftir snjónum.

Næstum sextíu árum síðar á landi sem heitir Ísland standa ráðamenn á gati varðandi þetta einfalda lögmál.

Þremur vikum eftir upphaf snjókomunnar er enn ómokað hvar sem litið er.

- Auglýsing -

Orðavalið „heima á klakanum“ hefur stundum verið gagnrýnt, en hvað snjómoksturinn snertir er það svo sannarlega sannmæli.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -