Fimmtudagur 16. maí, 2024
7.8 C
Reykjavik

Sigurður er fallinn frá

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigurður Hermannsson, tæknifræðingur og fyrrverandi umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi eystra, er látinn á 79. aldursári.

Sigurður fæddist á Akureyri 16. ágúst 1945 og lést 28. apríl síðastliðinn.

Hermann Vilhjálmsson og Aðalbjörg Sigurðardóttur voru foreldrar Sigurðar en systkini hans eru Hjörtur, Svala, Stefán og Brynjar.

Eiginkona Sigurðar, Antonía Marsibil Lýðsdóttir lést árið 2011. Foreldrar hennar voru Lýður Bogason og Erla Guðlaug Magnúsdóttir. Þau Sigurður og Antonía giftust árið 1970 og eignuðust tvær dætur, þær Kristínu, skrifstofumann á Akureyri og Erlu Guðlaugu, hjúkrunarfræðing í Stokkhólmi. Maki eru er Jakob Yngvason verkfræðingur en þau eiga tvo syni, Sigurð Yngva og Kristófer Anton.

Síðustu ár var sambýliskona Sigurðar hún Kolbrún Theodórsdóttir en börn hennar eru Björgvin, Þóra og Harpa Birgisbörn.

Eftir að Sigurður nam húsasmíði í Iðnskólanum á Akureyri, lærði hann tæknifræði í Tækniskólanum í Reykjavík. Mest alla starfsævi sinnar vann Sigurður á Verkfræðiskrifstofu Norðurlands, sem hann stofnaði auk annarra en síðustu 15 árin var hann umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi eystra.

- Auglýsing -

Þá var Sigurður virkur í félagsmálum. Starfaði hann mikið fyrir Íþróttafélagið Þór, Frímúrararegluna, Lionsklúbb Akureyrar og Félag eldri borgara. Aukreitis var hann virkur í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Æengi var átti lax- og rjúpnaveiði hug og hjörtu Sigurðar en eftir að hann hætti störfum, varð golf ástríða hans.

Útför Sigurðar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 7. maí 2024 kl. 13.00.

Akureyri.net sagði frá andlátinu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -