Íbúar á Seltjarnarnesi hnakkrífast nú um hvort skólamaturinn sem börnum þeirra er boðið upp á í skólanum sé boðlegur eður ei. „Ömurlegt“ og „Þetta er bænum til háborinnar skammar“ eru meðal ummæla bálreiðra bæjarbúa sem tjá sig um matinn sem boðið var upp á í gær.
Inn á Facebook hóp Seltjarnarness eru myndir birtar af skólamatnum sem um ræðir.
„Uuuuu….ok…Verði börnunum að góðu. Ég myndi varla vilja gefa hamstrinum mínum þetta.“
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/09/skolamatur.jpg)
Margir bæjarbúar blanda sér í umræðuna og flestir þeirra eru ekki hrifnir af þessari máltíð sem vísað er til.
„Versla ekki lengur við þessa, þetta er óboðlegt, það eina sem á eftir að duga er ef allir sýna samstöðu og segja þessu upp. Það væri gaman að bjóða bæjarstórn í hádegismat í skólanum, óvænt.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Seltirningar tapa sér yfir skólamat barnanna sinna. Fyrrverandi ráðherra, Gylfi Magnússon, furðar sig á því fæði sem nemendum á Seltjarnarnesi er boðið upp á. Hann virðist ekki sá eini því fjölmargir bæjarbúar taka undir með honum eftir að hann birti mynd af matardiski sem börnum var boðið uppá.
Karl Pétur Jónsson, tengdasonur Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, lét ekki bjóða sér skólafæðið lengur. „Öll börnin okkar eru hætt í mat og taka með sér mat að heiman,“ segir Karl Pétur.