Mánudagur 6. maí, 2024
2.8 C
Reykjavik

Veðrið versnar aftur um hádegi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gul viðvörun tók gildi víða um land í nótt en búist er við að veðrið taki að versna aftur um hádegi í dag. Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands verður gul viðvörun í gildi fram til morguns. Á höfuðborgarsvæðinu gætu íbúar átt von á slyddu í kvöld en búast má við heiðskýru veðri á Norður og Austurlandi.

Veðurspá á vef Veðurstofunnar fyrir næstu daga:

„Á föstudag:
Suðvestan og sunnan 13-20 m/s og rigning eða snjókoma með köflum en úrkomuminna norðaustantil. Hiti 0 til 6 stig. Dregur úr vindi seinnipartinn og kólnar vestanlands með éljum.

Á laugardag:
Suðvestan 8-15 m/s og él, en þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti nálægt frostmarki.

Á sunnudag:
Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en lengst af þurrt norðanlands. Fer að snjóa vestantil um kvöldið. Frost 0 til 5 stig en rétt yfir frostmarki við suðurströndina.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -