Landeigendur einnar fallegustu og merkustu náttúruperlu landsins hafa samþykkt kauptilboð í svæðið. Sex ár eru síðan landið, Heiði, var auglýst til sölu en er það 315 hektarar og staðsett skammt frá Kirkjubæjarklaustri en þar er Fjaðrárgljúfur staðsett. Magnús Leópoldsson, fasteignasali, sagði kaupin í ferli í samtali við Fréttablaðið. Þá hafði ríkið forkaupsrétt í jörðina en samkvæmt heimildum blaðsins er kaupandinn Íslendingur sem starfar í ferðaþjónustu. Þá herma heimildir að kaupverðið sé á bilinu 300-350 milljónir króna.
Fjaðrárgljúfur hefur verið gríðar vinsæll ferðamannastaður en þurfti Umhvefisstofnun að loka gljúfrinu árið 2019. Ástæða þess var vegna mikilla anna þar sem ferðamenn gengu um allt og langt út fyrir göngustíga. Kveikjan að vinsældunum var tónlistarmyndband poppstjörnunnar Justin Bieber, þar sem hann er staddur í gljúfrinu fallega. Ekki liggur fyrir hvort kaupandi ætli sér gjaldtöku á svæðinu en fram að þessu hefur enginn aðgangseyrir verið á svæðinu og bílastæði einnig gjaldfrjáls.