Föstudagur 26. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Jafnréttisstofa hlaut styrk fyrir verkefni um mikilvægi fjölbreytileika á vinnumarkaði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jafnréttisstofa hlaut á dögunum 60.000€ styrk jafnvirði rúmlega 9 milljónum íslenskra króna á núverandi gengi úr Erasmus+ á sviði mennta- æskulýðs- og íþróttamála í flokki samstarfsverkefna.

Verkefnið sem er styrkt er unnið í samstarfi við Inova Aspire í Hollandi og kallast “Diversity Inside Out – Voices from Inside Organisations Foster Change“.

Hjalti Ómar Ágústsson, sérfræðingur á Jafnréttisstofu, tók við styrknum á Kjarvalsstöðum og er áætlað að verkefnið hefjist 1. desember 2021 og ljúki í júní 2023.

Jafnréttisstofa hefur frá árinu 2018 haft umsjón og eftirlit með framkvæmd laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, og lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði.

Samkvæmt Jafnréttisstofu er verkefnið liður í að veita fræðslu og efla þekkingu og getu stofnunarinnar til að sinna skyldum sínum.

Jafnréttisstofa útskýrir að með verkefninu verður lögð áhersla á mikilvægi fjölbreytileika á vinnumarkaði og hvernig stjórnendur, mannauðsstjórar, starfsfólk og ráðgjafar innan fyrirtækja, stofnana og félaga, geta virkjað fjölbreytileika innan skipulagsheilda starfseminni í hag.

- Auglýsing -

Litið verður til mismunandi áhrifa Covid-19 og aukinnar fjarvinnu á vinnuveitendur og starfsfólk og hvernig koma má í veg fyrir neikvæð áhrif á fjölbreytileika og framgang mismunandi hópa í starfi.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -