Miðvikudagur 1. maí, 2024
2 C
Reykjavik

John Snorri fyrsti Íslendingurinn til að klífa topp K2 að vetrarlagi – Lést á niðurleiðinni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nú hefur verið staðfest að John Snorri, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr hafa náð toppi fjallsins K2 áður en þeir létust. Yfirlýsing frá bæði syni Ali Sadpara og Team ali Sapdara staðfesta það.

 

Hetjurnar þrjár náðu toppi fjallsins K2. Megi þeir hvíla í friði.
Toppur fjallsins K2

Þeir komust á toppinn

Í yfirlýsingunni segir að með tilliti til staðsetningar klifurbúnaðar mannana sé það ljóst að þeir voru á leið sinni niður aftur af toppi K2 er þeir létust. Þar kemur einnig fram að þeir hafi látist af sökum þess mikla kulda sem þar var.

 

Hér má sjá leiðina sem liggur upp að flöskuhálsnum á K2

 

- Auglýsing -

  Erfitt að flytja líkin að svo stöddu

Búið er að koma líkum mannanna þriggja fyrir á öruggum stað en ekki er unnt að sækja þau ða svo stöddu vegna mjög erfiðra skilyrða á staðnum. reynt verður að gera það um leið og færi gefst en eins og staðan er núna er það bæði mjög hættulegt og myndi stofna lífi þeirra sem kæmu að verkinu í talsverða hættu. Málið er í höndum Pakistanskra stjórnvalda sem ætla að skoða málið og reyna svo að endurheimta lík mannanna af K2 þegar viðunandi skilyrði eru og réttur tækjabúnaður fæst til verksins.

 

- Auglýsing -

Kom líki föður síns einn frá flöskuhálsinum niður í grunnbúðir 4

Sonur Ali Sadpara, Sajid Ali Sadpara kom líki föður síns, eins síns liðs frá svo kölluðum flöskuhálsi K2 niður að grunnbúðum númer 4. Þar hélt hann litla athöfn að sið múslima  og las yfir honum bænir að ósk móður sinnar.

 

Hér kom Sajid föður sínum fyrir

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -