- Auglýsing -
ORÐRÓMUR Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður á Mogganum og siðfræðingur, er á meðal umdeildari fjölmiðlamanna. Hann var um tíma formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur en var felldur í kosningum.
Stefáni Einari misbauð þegar hann sá í Silfrinu að Fanney Birna Jónsdóttir, hluthafi í Kjarnanum, fékk Þórð Snæ Júlíusson, hluthafa og ritstjóra Kjarnans, í settið í annað sinn á skömmum tíma. Spilling, sagði gamli verkalýðsformaðurinn.