Föstudagur 26. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Marta Smarta (46) og Páll Winkel (49) búa í trylltu húsi við Tjarnarbrekku – Sjáið myndirnar!

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ofurhjónin geðþekku, Marta María Jónasdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu og Páll Winkel fangelsismálastjóri búa í glæsihúsi við Tjarnabrekku 6 í Garðabæ – nánar tiltekið – á Álftanesi.

Marta María Jónasdóttir og Páll Winkel fangelsmálastjóri búa vel ásamt fjölskyldu sinni. Hjónin geðþekku festu kaup á  stórglæsilegri lúxuseign á Tjarnarbrekku á Álftanesi í ársbyrjun 2021; í nágrenni við Bessastaði, og útsýnið er ekkert minna en stórfenglegt.

Rétt áður höfðu þau hjón selt lúxushús sitt í Fossvogi fyrir litlar 120 milljónir króna.

Samsett mynd.

Marta og Páll hafa verið saman um langa hríð; urðu par árið 2015; trúlofuðu sig tveimur árum síðar; gengu í heilagt hjónaband í ágúst árið 2021 – og fóru ekki langt; létu pússa sig saman í Bessastaðakirkju – stutt frá lúxushúsi þeirra á Álftanesi.

- Auglýsing -

Marta hefur verið lengi að í fjölmiðlum; best þekkt fyrir að ritstýra Smartlandinu á mbl.is. Hún er dóttir Jónasar Garðarssonar, fyrrverandi formanns Sjómannafélags Íslands.

- Auglýsing -

Páll Winkel starfaði hér áður fyrr sem lögreglumaður; var framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna til ársins 2007. Þá tók hann við stöðu aðstoðarríkislögreglustjóra; síðar sama ár tók hann við stöðu fangelsismálastjóra; gegnir henni enn.

Ljóst er á myndunum, staðsetningunni og útsýninu að þessi eign er af dýrari gerðinni.

Verðið var 150 milljónir króna en ljóst er að lúxushús hjónanna hefur hækkað mikið í verði og færi í dag á 200 milljónir hið minnsta.

Glæsihýsi Mörtu og Páls er 226 fermetrar að stærð; þarf vart að taka fram að hér er um að ræða einbýli.

Var húsið byggt hið fræga ár 2007; þykir það endurspegla ágætlega þann tíma í Íslandssögunni.

Það er því aug­ljóst að elít­an býr ekki bara í 105 Reykjavík og á Seltjarn­ar­nesi. Hún býr líka í 225 Garðabæ; nánar tiltekið á Álftanesi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -