Lögmaður annars mannsins sem grunaður er um skipulagningu hryðjuverka hér á landi, Sveinn Andri Sveinsson, telur breyttar forsendur fyrir gæsluvarðhald í kjölfar mats geðlæknis á mönnunum.
Þetta kemur fram á mbl.is.
Segir Sveinn Andri mennina hafa fyrst verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna; síðar á grundvelli almannahagsmuna:

„Þá lá til grundvallar þeim úrskurði héraðsdóms og landsréttar hættumat sem greiningadeild ríkislögreglustjóra hafði unnið. Almennt í svona greiningum er stór þáttur mat á geðrænu ástandi en það hafði ekki farið fram.
Geðlæknir var dómkvaddur til að leggja mat á sakborninga. Hann skilaði niðurstöðum í fyrradag. Það er hans mat að sakborningarnir tveir séu ekki hættulegir, hvorki sjálfum sér né öðrum einstaklingum eða hópum,“ segir Sveinn Andri og bætir við að hættumat greiningardeildarinnar byggji á ákveðnum stöðlum; þar sem merkt er í box; það sé alltaf matskennt og inn í þá greiningu vanti mat á andlegu ástandi, en nú liggur það fyrir:
„Þetta ætti að leiða til þess að dómari vindi ofan af þessu hættumati lögreglunnar.“
Í dag verður tekin fyrir gæsluvarðhaldskrafa héraðssaksóknara en als óvíst er hvort dómari kveði upp úrskurð sinn í dag.