Maðurinn sem lést eftir hnífsstunguárás við Fjarðarkaup í Hafnarfirði fimmtudaginn 20. apríl síðastliðinn hét Barlomiej Kamil Bielenda. Hann var 27 ára; lætur eftir sig tveggja ára gamla dóttur, en þetta kemur fram á Vísi.
Kemur þar fram að bænastund verður í Fossvogskirkju síðdegis í dag.
Kristófer Gajowski, fulltrúi fjölskyldunnar, tekur til máls í athöfninni; Iva Marín mun syngja og Guðný Einarsdóttir spilar á orgel.
Kristófer segir atburðinn hafa tekið mikið á fjölskyldu Barlomiej; það sé ávallt sérlega sorglegt er foreldrar þurfi að skipuleggja útför fyrir börnin sín; það eigi að vera á hinn veginn.
Til stendur að flytja jarðneskar leifar Barlomiej til Póllands þar sem önnur athöfn fer fram.