Fimmtudagur 28. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Ragnar Þór Ingólfsson býður sig aftur fram: „Stóru málin verða sem fyrr húsnæðismálin“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, mun bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í félaginu, en þetta tilkynnir Ragnar í færslu í Facebook núna áðan; kosningarnar fara fram í mars.

„Ég hef tekið ákvörðun um að bjóða mig fram til áframhaldandi formennsku í VR en kosningar fara fram í félaginu í mars næstkomandi. Þrátt fyrir neikvæða umræðu um verkalýðshreyfinguna stendur VR ákaflega vel. Starf stjórnar og skrifstofu VR hefur verið framúrskarandi gott og einkennst af mikilli samheldni og virðingu. Á síðasta ári fór félagsaðild í fyrsta skipti yfir 40 þúsund sem gerir félagið að lang stærsta stéttarfélagi landsins.“

Hann segir að „við munum halda áfram þeirri góðu vinnu við breytingar á félaginu til að koma betur til móts við breytingar á vinnumarkaði og ólíkar þarfir ólíkra hópa innan okkar raða. Meira um það síðar.

Það hefur farið mikil orka í innbyrðis átök á vettvangi ASÍ og er hreyfingin þverklofin hvað það varðar. Ég trúi því að hreyfingunni beri gæfa til að vinna sig í gegnum þessa stöðu á komandi framhaldsþingi ASÍ og mun ég leggja mitt af mörkum svo það megi verða.“

Ragnar er áþví að „stjórnarstarfið í VR hefur gengið afskaplega vel. Að vinna í slíku umhverfi þar sem þú ert alltaf með vindinn í bakið eru ekki bara forréttindi heldur gerir það okkur kleift að vinna mun fleiri hagsmunamálum okkar brautargengi. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Við erum liðsheild og allir leggja sitt af mörkum í að vinna sem best fyrir félagsfólkið okkar.

Rekstur og staða félagsins hefur aldrei verið sterkari og starfsandi vart verið betri í þau 14 ár sem ég hef setið í stjórn og sem formaður félagsins.“

- Auglýsing -

Ragnar bendir á að starfið sé „mikil og óeigingjörn vinna þar sem allir leggja hönd á plóg og styðja hvert annað í þeim fjölmörgu málaflokkum sem félagið beitir sér í og eru kjörnum fulltrúum okkar hugleikin hverju sinni. Mínar áherslur verða sem fyrr segir að halda áfram að bæta kjör og réttindi okkar félagsfólks og berjast fyrir réttlátara samfélagi og veita stjórnvöldum nauðsynlegt aðhald. Við höfum nú þegar hafið vinnu við gerð langtíma kjarasamnings sem byrjaði á viðræðum um starfsmenntamálin 19. janúar. Við munum hefja viðræður um stytttingu vinnuvikunnar, fjölgun orlofsdaga og fjarvinnu 14. mars næstkomandi og svo koll af kolli.“

Ragnar ætlar að berjast af hörku gegn spillingu:

„Ég mun einnig leggja mikla áherslu á jafnréttismálin og áframhaldandi gott samstarf við önnur hagsmunasamtök í almannaþágu. Stóru málin verða sem fyrr húsnæðismálin. Þar ber helst að nefna aukna leiguvernd og aðgerðir vegna stöðu þeirra sem eru með stökkbreytt húsnæðislán. Og áframhaldandi uppbyggingu Bjargs og Blævar. VR er að hefja framkvæmdir við byggingu leiguíbúða fyrir félagsfólk VR í gegnum Blæ, sem er nýtt húsnæðisfélag sem er ætlað til uppbyggingar á hagkvæmu húsnæði án tekjumarka. Hugmyndafræðin í kringum Blæ er að höfða til fjárfestinga lífeyrissjóða inn á húsnæðismarkað og hef ég leitt það verkefni á vettvangi hreyfingarinnar sem og frekari uppbyggingu Bjargs fyrir tekjulága.

- Auglýsing -

Ég mun halda áfram að berjast gegn spillingu í íslensku samfélagi en fyrst og fremst einbeita mér að því frábæra starfi sem stjórn og starfsfólk VR hefur unnið á vettvangi réttlætis og kjarabaráttunnar.“

Ragnar er bæði baráttuglaður og þakklátur:

„Ég er ákaflega þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem ég hef fengið frá ykkur í gegnum árin í þessari vegferð minni á vettvangi réttlætisbaráttunnar og vona ég að svo verði áfram.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -