Fyrrum þingmaðurinn og baráttujaxlinn Þór Saari segir „brask með grunnþörf eins og húsnæði er algerlega siðlaust og þarf einfaldlega að stöðva. Tökum Holland til fyrirmyndar.
„Yfirvöld í Hollandi segja að fasteignamarkaðurinn sé fyrir fólk sem er að leita sér að heimili, en ekki fyrir braskara sem vilja hagnast á leigumarkaðnum. Fjölmörg sveitarfélög í Hollandi hafa tekið upp á því að sekta braskara fyrir að kaupa húsnæði gagngert til útleigu.“
Þór bætir því við að slík ákvörðun hafi komið „í kjölfarið á lögum sem hollenska þingið samþykkti og tóku gildi þ. 1. janúar 2022.“
Þór varpar ljósi á tilgang laganna í Hollandi og vill að Íslendingar taki sér þetta til fyrirmyndar:
„Markmið yfirvalda með lögunum er að vernda fjölskyldur á húsnæðismarkaði og koma í veg fyrir okur á leigumarkaði. Lögin gera sveitarfélögum kleift á að stemma stigu við ásælni braskara á húsnæðismarkaðnum og tryggja að nýbyggingar endi ekki í höndunum á þeim með því að banna spákaupmennsku. . . . Í Amsterdam höfuðborg Hollands má til dæmis ekki leigja út íbúð fyrr en eigandi hefur búið í henni sjálfur í að minnsta kosti fjögur ár.“