- Auglýsing -
Útvarpsmaðurinn frábæri á Rás 2 – Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunnars, er kominn á fast.
Sá heppni ber nafnið Sigmar Ingi Sigurgeirsson; þeir hafa deilt skemmtilegum og sætum myndum af sér saman á Instagram.
Fréttablaðið greindi fyrst frá.
Í dag starfar Siggi sem tónlistarstjóri Rásar 2; hann starfaði lengi vel hjá útvarpsstöðinni K100.
Kærasti Sigga, Sigmar, starfar sem deildarstjóri Tómstundamiðstöðvarinnar hjá Lækjarskóla í Hafnarfirði.
Mannlíf sendir þeim Sigga og Sigmari hamingjuóskir!