Sigursteinn Másson vill að Íslendingar gangi í ESB og tjáir sig um málið í samfélagsmiðla-hópnum Já Ísland sem er sameiginlegur vettvangur Evrópusinna á Íslandi, sem telja að framtíð Íslands sé mun betur borgið innan samfélags þjóðanna innan Evrópusambandsins:
„Nú verður að gefa í með þetta mál! Þeir sem tala fyrir mikilvægi samstöðu í Evrópu gegn einræði og yfirgangi hljóta allir sem einn að koma með á Evrópuvagninn.“
Bætir við:
„Sömuleiðis þeir sem kvarta undan háum vöxtum, ónýtum gjaldmiðli, veikum innviðum og máttlítilli nýsköpun.“
Segir að endingu:
„Bretland er besta sýnidæmið um kosti Evrópusambandsaðildar. Ísland er næst besta dæmið eða næst verst í Evrópu, eftir því hvernig á er litið. Við erum að óbreyttu að sigla inn í stöðnun sem getur orðið langvarandi ef við bregðumst ekki við og skiptum um kúrs. það er ábyrgðarhlutur að þagga þetta mikla hagsmunamál áfram niður.“