Föstudagur 19. apríl, 2024
1.8 C
Reykjavik

Styrmir Gunnarsson lést í gær – „Hann var skemmtilegur maður“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Styrm­ir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðsins, lést í gær á heim­ili sínu við Mar­bakka­braut í Kópa­vogi, 83 ára að aldri, eft­ir bar­áttu við af­leiðing­ar heila­slags snemma á þessu ári. Morgunblaðið greinir frá.

Styrm­ir fædd­ist í Reykja­vík hinn 27. mars 1938. Hann lauk embætt­is­prófi í lög­fræði frá Há­skóla Íslands. Styrm­ir gaf sig mjög að fé­lags­störf­um og var vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins og sat jafnframt í auðlinda­nefnd.

Styrm­ir starfaði mest­alla starfsævi sína á Morg­un­blaðinu. Hann fór raun­ar fyrst að skrifa í blaðið að staðaldri tví­tug­ur að aldri. Hann hóf svo störf á rit­stjórn sem blaðamaður árið 1965. Hann varð aðstoðarrit­stjóri 1971 og var ráðinn rit­stjóri 1972. Þar starfaði hann all­ar göt­ur síðan og náði 43 ára farsælum ferli á blaðinu.

Styrm­ir lét þó ekki af ritstörf­um og virkri þátt­töku í þjóðmá­laum­ræðu eft­ir að hann hvarf úr rit­stjóra­stóli Morg­un­blaðsins. Eft­ir hann liggja og all­nokkr­ar bæk­ur, all­ar um stjórn­mála­sögu lands­ins nema ein, Ómunatíð, sem er fjöl­skyldu­saga um geðsjúk­dóm eig­in­konu hans og vakti mikla at­hygli.

Illugi Jökulsson rithöfundur er einn þeirra sem minnast Styrmis með fallegri kveðju á Facebook. „Um pólitískt starf Styrmis Gunnarssonar má margt segja og ég vona að stórmerkum blaðamannaferli hans sem ritstjóra Morgunblaðsins verði gerð viðhlítandi skil. Og hann var skemmtilegur maður, það veit ég jafnvel af okkar litlu kynnum. En mikilvægast er hverri manneskju að reynast vel og dyggilega sínum nánustu og það veit ég að Styrmir gerði sannarlega og setti framar öllu í lífi sínu,“ segir Illugi.

Styrm­ir lét sig þjóðmá­laum­ræðu miklu varða og átti trúnaðar­menn þvert á all­ar flokkslín­ur, þrátt fyr­ir að skoðanir hans færu alla tíð að mestu sam­an við stefnu Sjálf­stæðis­flokks­ins. Frægt varð þegar hann kallaði valdastétt landsins „djúpríki“ og opnaði sig um íslenskt samfélag fyrir rannsóknarnefnd Alþingis eftir hrun: 

- Auglýsing -

„Ég er búinn að fylgjst með þessu þjóðfélagi í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -