Að sögn Sóleyjar Lóu Smáradóttur, sem er fimmtán ára grunnskólastúlka sem hefur stigið fram og greint frá kynþáttafordómum sem hún hefur orðið fyrir, eru einelti, hatursorðræða og kynþáttafordómar allt samtengt, eins og segir í grein Fréttablaðsins:
„Ég gæti sagt að þetta tengist allt að einhverjum vissum punkti, því að þetta er allt ljótt sem er að gerast í kringum hatursorðræðu, einelti og fordóma. Ekkert við þetta er gott og þetta ætti ekki að gerast. Ég myndi segja að þetta tengist allt.“
Sóley Lóa kom í heimsókn á Fréttavaktina í kvöld.
Segist Sóley Lóa oft heyra ummæli sem henni hafa fundist mjög óþægileg:
„Mér finnst að þetta ætti bara alls ekki að vera, því að það er svo leiðinlegt að fá eitthvað svona á móti sér, bara af því að maður er dökkur á hörund eða af því að maður er einhvern vegin öðruvísi. Þetta ætti alls ekki að vera svona; engum ætti að líða illa yfir að hafa fæðst svartur; eða einhvern veginn litaður eða öðruvísi; ég ræð ekki hvernig ég fæðist; ég bara fæddist svona. Það að samfélagið tekur ekki hlýlega á móti mér, ég skil það ekki,“ sagði þessi hugrakka stúlka sem gagnrýndi viðbrögð skólastjórans í grunnskólanum hennar eftir að hún sagði frá þeim fordómum sem hún hefur upplifað. Segir hún að skólastjóranum hafi fundist „klikkað“ að heyra þetta frá Sóleyju Lóu:
„Þetta var í fyrsta sinn sem hún var að fá svona mál, þannig að hún kunni örugglega ekki alveg að bregðast við svona, en hvernig hún brást við, það skildi ég ekki, því það tók hana svo langan tíma að púsla því saman hvað hún átti að gera.“