Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Anna skelfur úr kulda á Spáni: „Mér er þetta óskiljanlegt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Anna Kristjánsdóttir skelfur úr kulda í Spánarfríi sínu.

Eins og lesendur Mannlífs vita er Anna Kristjánsdóttir, vélstjóri og húmoristi, í fríi á meginlandi Spánar. Í nýjustu dagbókarfærslu hennar kvartar hún undan kulda.

„Dagur 1687 – Kuldaskræfa liggur undir feldi.
Ég skil ekki eitt. Það eru allir að tala um að það sé svo hlýtt og notalegt á Spáni að hingað flykkjast Íslendingar í tugþúsundatali í þeim erindum að eiga hér vetrardvöl og hafa margir þeirra fjárfest í húsum eða íbúðum hérna til að geta notið vetrarins í ákjósanlegu loftslagi. Mér er þetta óskiljanlegt.“

Anna segist hafa komið fjórum sinnum til meginlands Spánar og í hvert skipti skolfið úr kulda.

„Ég hefi komið fjórum sinnum til meginlands Spánar. Fyrst vorið 2018, en síðan aftur haustið 2022, í febrúar 2023 og núna síðari hluta marsmánaðar 2024. Í öll skiptin hefi ég verið skjálfandi úr kulda mestallan tímann, þó síst vorið 2018 er ég fékk tvo sæmilega og ásættanlega sólardaga af þeim sjö sem ég dvaldi hérna í það skiptið. Best að taka fram til að fyrirbyggja misskilning, að þetta hefur ekkert með gestgjafa minn að gera, en hún hefur gert allt sem í hennar valdi stendur til að halda á mér hlýju.“

Að lokum spyr Anna sjálfa sig spurningar:

„Fyrir bragðið spyr ég mig þess, er eitthvað að termóstatinu hjá mér eða er fólk að skrökva að mér um vistina á sólarströnd? Þeir Íslendingar sem ég hefi hitt hér eru sannfærðir um hið fyrrnefnda, að ég sé kuldaskræfa.“

- Auglýsing -

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -