Söngkonan ástsæla Birgitta Haukdal sýnir á Instagramaðgangi sínum frá lífinu og fjörinu sem leynist á bak við Idol þættina. Þar deilir hún myndskeiðum af mörgum þekktustu stjörnum Íslands.
Í gær deildi hún stórskemmtilegu myndskeiði af Aroni Mola sem situr undir höndum hárgreiðsludömu og er í klippingu. Kappinn síkáti er í óðaönn að borða, það sem virðist vera poppkorn. Birgitta segist ætlaa að deila með fylgjendum sínum hollráði Arons Mola. „Þetta er alvöru bíóupplifun,“ segir Aron eftir að Birgitta teygir sig í Nóa kropp og því er blandað við poppkornið. Vinir deila gotteríinu enda vert að fylla vel á tankinn fyrir fjör kvöldsins.

Birgitta deildi einnig af sér myndum; Fyrir-og-eftir-förðun.

Þá brá einnig fyrir Daníeli Ágústi, Bríeti, Herra Hnetusmjör og fleiri þekktum.