Bríet Ísis Elfar birti sjóðheitar ljósmyndinr af sér á Instagram sem slógu rækilega í gegn.
Söngdívan Bríet er vön að fara ótroðnar slóðir þegar kemur að búninga og fatavali þegar hún kemur fram, hvort sem um er að ræða á sviði, sem dómari í Idolinu eða á ljósmyndum á Instagram en oftar en ekki tekur hún sjálf þátt í sköpun þeirra klæða sem hún ber.
Í nýjustu færslu sinni á Instagram birtir hún sjóðandi heitar ljósmyndi af sér þar sem hún sýnir nýjustu múnderinguna en það er gegnsær kjóll en hún ber einnig silfurlitaðan lepp fyrir hægra auganu og neglur í stíl og minnir helst á stjörnusjóræningja. Við færsluna skrifar hún einfaldlega: „Passa sig“. Færslan vakti aldeilis lukku hjá fylgjendum Bríetar en þegar þetta er ritað hafa yfir 1600 manns líkað við hana.
Hér má líta herlegheitin augum:
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2024/02/Briet.jpg)
Ljósmynd: Instagram-skjáskot
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2024/02/Briet2.jpg)
Ljósmynd: Instagram-skjáskot
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2024/02/Briet3.jpg)
Ljósmynd: Instagram-skjáskot
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2024/02/Briet4.jpg)
Ljósmynd: Instagram-skjáskot