- Auglýsing -
Eurovisionstjarnan Diljá Pétursdóttir er orðin einhleyp.
Vísir fullyrðir að Diljá sé hætt með rapparanum Daníel Óskari Jóhannessyni, sem hefur notið vinsældar með hljómsveitinni Sprite Zero Klan. Þá hefur hann einnig verið annar af kynnum Skólahreystir á Ríkisútvarpinu.
Diljá vann hjörtu Íslendinga í Söngkeppni sjónvarpsins með lagið Power en framkoma hennar og kröftugur persónuleiki heillaði þjóðina. Hún stóð sem með prýði í Eurovision í maí en aðeins munaði einu sæti á að hún kæmist upp úr undanriðlinum.
Samhliða tónlistinni hefur Diljá, sem er 22 ára, stundað nám í sjúkraþjálfunarfræði.
Mannlíf óskar henni alls hins besta.