Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Gillon gefur út Bláturnablús – Fyrsta plata hans í sex ár

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tónlistarmaðurinn Gillon eða Gísli Þór Ólafsson eins og hann heitir, hefur nú gefið út sína fimmtu plötu eftir sex ára hlé.

Bláturnablús er fimmta sólóplata Gillons og sú fyrsta eftir 6 ára hlé. Upptökur hófust sumarið 2020 og var tekið upp með hléum í Stúdíó Benmen fram undir lok ársins 2021. Platan inniheldur 9 lög og texta eftir Gísla Þór Ólafsson og syngur Gísli þau öll og spilar á kassagítar og bassa. Upptökustjóri er Sigfús Arnar Benediktsson, en þeir Gísli og Sigfús hafa unnið allar plötur Gísla saman. Sigfús spilar á rafmagnsgítar, trommur, píanó, hammond-orgel, bassa og hljóðgervla. Í lokalaginu „Engirauð tár“ eru gestasöngvarar í bakröddum, þau Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir og Eysteinn Ívar Guðbrandsson.

Myndin sem prýðir á umslagið er eftir Óla Þór Ólafsson.

Platan kom fyrst í stað út á streymisveitum þann 22. febrúar 2022 og svo á vínyl í maí.

Gísli hefur gefið út sjö frumsamdar ljóðabækur á tímabilinu 2006-2019 og fimm breiðskífur á tímabilinu 2012-2022. Hann er einnig meðlimur í bandinu Contalgen Funeral en það band var virkt á árunum 2011-2018 og hefur gefið út tvær breiðskífur.

Lagalisti plötunnar Bláturnablús

- Auglýsing -

Lukkuklukkur

Vertu þér í vil

Tímaglas

- Auglýsing -

Má ekki elska þig

Fíll og köttur

Bláturnablús

Kaðalskikkjur

Á hárréttum tíma

Engirauð tár

Spotify-hlekkur: https://open.spotify.com/album/12sZ547mbQl4i2JDz4k50g?si=EbIooq0yQg6iYVHwBpSQmw

Youtube-hlekkur: https://www.youtube.com/watch?v=vxJT0LvI17U&list=OLAK5uy_mvnyPdZjktstbLQ7SPbhhz_bmNfaF0at0

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -