Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Glúmur feginn: „Því þá þyrfti ég að ljúga því blákalt að hafa aldrei stundað kynlíf“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Glúmur Baldvinsson skrifaði Facebook-færslu þar sem hann hæðist, að því er virðist, að ómerkilegheitum Stefáns Einars Stefánssonar hjá Morgunblaðinu, sem vakti hneikslan á dögunum fyrir spurningar til Baldur Þórhallssonar forsetaframbjóðanda, sem mörgum fannst jaðra við fordóma.

Í færslunni segist Glúmur, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur, vera feginn að hafa aldrei boðið sig fram til forseta því þá hefði hann þurft að ljúga til um skírlífi sitt.

„Mikið er ég feginn að hafa aldrei farið í forsetaframboð því þá þyrfti ég að ljúga því blákalt uppí opið geð þjóðarinnar að hafa aldrei stundað kynlíf. Og hafa enga kynhneigð. Og enga hneigð almennt. Nema sjálfshneigð. Einsog Pétur Hafstein forðum. Og Ólafur Ragnar Grímsson.“

Að lokum segir Glúmur að Íslendingar verði að halda í þá hefð að hafa forseta í brúnni sem aldrei hefur stundað kynlíf.

„Það ku vera staðreynd að enginn forseti vor frá upphafi hafi með einum eður öðrum hætti stundað kynlíf svo mark sé á takandi. Þessari hefð hljótum við sem þjóð að vilja viðhalda. Því ellegar fjölgar forsetaframbjóðendum í nánustu framtíð. Og nægir eru þeir fyrir.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -