Söngkonan og glamúrpían Svala Björgvinsdóttir hefur vakið mikla athygli í gegnum árin, þá sérlega eftir að hún hóf samband sitt við hinn 24 ára Kristján Einar eða Kleina. Svala virðist yngjast með hverju árinu sem líður, ekki er að sjá að hún sé á fimmtugsaldri. Svala sleit sambandi sínu við Kleina eftir að hann var handtekinn á Spáni, hún fann ástina á ný með manni að nafni Alexander en hann er jafnaldri Kristjáns.
Svala birti myndband á Instagram síðu sinni þar sem hún sýnir frá parinu snæða á veitingastað IKEA. Vinsældir sænsku kjötbollanna fara greinilega ekki í manngreinaálit. Kjötbollurnar gætu jafnvel verið lykillinn að unglegu útliti Svölu, þær virðast að minnsta kosti ekki hafa neikvæð áhrif.