Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Jay Leno hlaut alvarleg brunasár í slysi: „Ástand Leno er stöðugt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bandaríski grínistinn og þáttastjórnandinn Jay Leno slasaðist í andliti og höndum er kviknaði í bifreið hans í bílskúr Leno.

Leno, sem er hvað þekktastur fyrir að stjórna spjallþættinum The Tonight Show frá 1992 til 2014, er mikill bílaáhugamaður en í dag stjórnar hann einmitt bílaþættinum Jay Leno´s Garage. Það var einmitt í bílskúrnum hans sem hann varð fyrir alvarlegum bruna er eldur kviknaði í bifreið hans á dögunum. Var hann fluttur með hraði á sjúkrahús en hann var með brunasár á andliti og höndum.

Grínistinn vingjarnlegi sendi frá sér stutta yfirlýsingu til E News! í gær þar sem hann sagði meðal annars: „Ég hlaut nokkuð alvarleg brunasár eftir bensínbruna. Ég er í lagi. Ég þarf bara eina til tvær vikur til að ná mér aftur í lag.“

Grossman Burn Center-sjúkrahúsið í Los Angeles sendi einnig frá sér yfirlýsingur en þar stóð meðal annars: „Ástand Leno er stöðugt. Við erum að meðhöndla brunasár á andliti og höndum eftir brunaslys sem varð í bílskúr hans um síðastliðna helgi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -