Það hafa lengi verið skiptar skoðanir um tónlistarmanninn Bubba Morthens í íslensku samfélagi; ýmist dáður eða ekki – ekki hataður en ekki alltaf elskaður; Stór. Mikill. Skiptir um skoðanir. Kostur.

Útvarpsmaðurinn góðkunni Ólafur Páll Gunnarsson var mjög sáttur við Bubba og sagði frá því á Facebook, en þess ber að geta að það var Eiríkur Jónsson er sagði fyrstur frá:
„Ég sá Bubba Morthens syngja og spila í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Hann var algjörlega frábær!…6 stjörnur af 5 mögulegum. Vá vá vá!.“
Mikill fjöldi fólks líkar við athugasemd Óla Palla, og nokkrir rita athugasemdir.
En svo breytist gangur leiksins og inn á völlinn steig Árni Sveinsson, sem er kvikmyndagerðarmaður; menntaður í Harvard, og var barasta alls ekki sammála Óla Palla – lét þetta flakka og sást síðan í rykmekki á gráum fáki á þeysireið í átt til vesturs með glott á vör:

„Bubbi Morthens – Þú ert auðitað geimsteinn. En um leið gjörsamlega delusional. Manneskja sem kemur íhaldinu til valda, þjónar þeim í sjö ár og svo köttar hausinn af skömminni með því að…. Wake tfku! Síðasta góða platan þín kom út 1992.“