Föstudagur 26. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Sigmundur Davíð daufur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er með daufasta móti þessa dagana. Formaðurinn er þekktur fyrir að vera galvaskur, ósvífinn og kjaftfor en nú fer hann með veggjum í pólitíkinni. Nærtækt er að ætla að það snúist um lélega útkomu Miðflokksins í skoðanakönnunum sem er stutt frá útrýmingu. Sjálfur er Sigmundur talinn verða uppbótarþingmaður í höfuðvígi sínu, Norðausturkjördæmi. Ofan á allt bætist að flokkurinn logar í innbyrðis átökum vegna skipunar á framboðslista. Klausturmálið þar sem þingmenn flokksins hrakyrtu andstæðinga sína í ölæði er flokknum væntanlega dýrkeypt. Það blæs því ekki byrlega fyrir flokknum þegar örstutt er til kosninga. Sigmundur er þekktur fyrir að vera baráttuglaður og þykir víst að hann muni hrista af sér slenið og hefja upp raust sína á ný og laða til sín kjósendur sem halda sig á jaðrinum …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -