Fæstir botna í stjórntökum Kristins Þorsteinssonar, skólameistara Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Hann hefur sýnt sögukennara sínum, Páli Vilhjálmssyni, stuðning í rógsherferð hans og Morgunblaðsins á hendur Helga Seljan og starfsmönnum RÚV. Páll fór mikinn á sínum tíma og sagði að Helgi Seljan fréttamaður væri geðveikur. Mörgum ofbauð vegna fordómanna, en Kristinn stóð með undirmanni sínum. Síðan hefur Páll færst í aukana og staðhæft að starfsmenn RÚV hafi skipulagt að eitra fyrir Páli Steingrímssyni, skæruliða Samherja, í því skyni að stela síma hans. Enn hefur ekkert haldbært komið fram um að eitrað hafi verið fyrir skipstjóranum en sögukennarinn endurtekur ásakanir sínar í skjóli skólameistarans. „Byrlun Páls og stuldur á síma hans var skipulagt á RÚV,“ endurtók Páll í pistli sínum á Morgunblaðinu í gær. Morgunblaðið hefur á sér þannig orð að enginn undrast rógburð þaðan en öðru máli gegndi með Fjölbrautarskólann í Garðabæ …
Skólameistarinn Kristinn vekur furðu

Helgarviðtalið
- Auglýsing -
Orðrómur
- Auglýsing -
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -