Laugardagur 27. júlí, 2024
10.8 C
Reykjavik

Skuggalegur barnakennari

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Umfjöllun Þorsteins J. Vilhjálmssonar fjölmiðlamanns um barnakennarann Skeggja Ásbjarnarson dregur upp skelfilega mynd af manni sem misnotar og beitir börn ofbeldi í áratugum saman. Skeggi starfaði sem kennari við Laugarnesskóla og var athæfi hans þaggað niður, ef marka má vandaða þætti Þorsteins J. í útvarpi og sjónvarpi. Mörg vitni hafa stigið fram og lýst skuggalegu athæfi kennarans sem skaðað líf fjölda ungmenna.

Skeggi naut virðingar og var dáður sem kennari og útvarpsmaður á síðustu öld.Hann er sagður hafa níðst á drengjum kynferðislega en beitt stúlkur harðræði. Algjör þöggun var um mál Skeggja á sínum tíma. Skólayfirvöld fengu tilkynningar um athæfi hans en gerðu ekkert í málum og meint misnotkun hélt áfram.

Það var reyndar Björg Guðrún Gísladóttir sem fyrst vakti athygli á máli Skeggja. Hún er fyrrverandi nemandi í Laugarnesskóla og  höfundur bókarinnar Hljóðin í nóttunni. Í bókinni rauf hún áratuga þögn um meint kynferðisbrot Skeggja Ásbjarnarsonar. Einhverjir trúa því ennþá að Skeggi sé saklaus af þeim glæpum sem tilgreindir hafa verið …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -