Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Vinátta

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Að vera vinur í raun er ekki klisja, heldur er vinátta eitt það dýrmætasta sem einstaklingur getur öðlast; sönn vinátta annars eða annarra fylgir manni í gegnum allt lífið og gæðir það meiri dýpt og tilgangi.

Það er ekki hægt að kaupa sanna vináttu, sama hversu mikið fé er í boði – það vita allir sem hafa kynnst sannri vináttu.

Og vináttan er dýrmætust þegar erfiðleikar steðja að, hvort sem um ræðir á barnsaldri, unglingsaldri eða á fullorðinsárum.

Og þá skiptir ekki máli hver vandinn er; sannur vinur yfirgefur ekki vin sinn í raun – svoleiðis gera sannir vinir bara alls ekki.

Erfiðleikarnir sem ég minntist á eru prófsteinn sannrar, raunverulegrar vináttu. Þegar eitthvað bjátar á kemur í ljós hver er sannur vinur í raun og hver ekki – það hef ég í það minnsta reynt og margir aðrir sem ég þekki vel. Sumir átta sig nefnilega ekki á því að það er mikill munur á sannri vináttu og kunningsskap, sem er alls ekkert slæmur, en einfaldlega langt frá því að vera alvöruvinátta.

Hins vegar getur kunningsskapur snúist upp í sanna vináttu, sem betur fer. Og vinátta getur líka, því miður, eyðilagst af ýmsum völdum.

- Auglýsing -

En ég segi hiklaust:

Aldrei að afskrifa vin þinn. Vinir rífast og slást, talast ekki við í langan tíma og hugsa oft hvor öðrum þegjandi þörfina.

Svo líður tíminn og þoka gleymskunnar færist yfir og afmáir deilumálin sem voru í raun aldrei neitt neitt.

- Auglýsing -

Svo næst þegar vinirnir sem voru að rífast hittast eftir langan tíma er eins og ekkert hafi í skorist og tíminn staðið kyrr; andartakið verður nútíð, framtíð og fortíð í einni svipan.

Vinátta er djúp og kemst aldrei í tísku og fer heldur aldrei úr tísku.

Vinátta er.

Vinir hvorki velja hvor annan né yfirgefa hvor annan; djúp vinátta er tengsl sem verða ekki rofin, og gera lífið og tilveruna betri og skemmtilegri.

Hér má lesa nýjasta blað Mannlífs á vefformi

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -