Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Austfirðingum boðið í kaffi með flóttafólki: „Því líður vel á Eiðum og er mjög ánægt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Austfirðingar hafa fengið boð frá Rauða krossinum í kaffi á laugardaginn með hópi flóttafólks frá Úkraínu sem nýlega flutti á Eiðar. Kann hópurinn vel við sig fyrsta mánuðinn og er nú að taka sín fyrstu skref í samfélaginu og atvinnulífinu fyrir austan.

„Við ætlum að bjóða Austfirðingum og þeim sem búa á Eiðum í kaffi og vonumst til að heimafólk bjóði þá hjartanlega velkomna í samfélagið fyrir austan,“ segir Róbert Theoródsson, verkefnastjóri í málefnum flóttafólks hjá Rauða krossinum í samtali við Austurfrétt.

Kaffiboðið verður haldið í sal Rauða krossins að Dynskógum 4 á Egilsstöðum, á neðri hæð nytjamarkaðar samtakanna en það verður milli 14 og 16 á morgun. Þar getur áhugasamt fólk aukreitis kynnt sér þar verkefni Rauða krossins er snúa að flóttafólki en einnig er unnið að því að koma upp félagsneti til að hjálpa fólkinu að komast betur inn í samfélagið.

„Rauði krossinn er í sálfélagslegum stuðningi þar sem markmiðið er að efla félagsvirkni og koma í veg fyrir félagslega einangrun. Við vinnum að gagnkvæmri aðlögum flóttafólks að íslensku samfélagi og sjáum kaffiboðið sem gott tækifæri fyrir heimafólk til að kynnast þeim sem sest hafa að á Eiðum.

Við vonumst eftir að fá sjálfboðaliða á svæðinu til að taka þátt í því með okkur. Við erum annars vegar með pörunarverkefni sem oft er þekkt sem stuðningsfjölskylda en við köllum leiðsöguvin eða tungumálavin, þar sem við pörum saman heimafólk við einstakling sem nýtur alþjóðlegrar verndar.

Viðkomandi hefur þá einhvern sem hann getur leitað til með spurningar um íslenskt samfélag og menningu, er hans haukur í horni og aðgangur að íslensku tengslaneti. Það gefur þeim einnig möguleika á að æfa tungumálið. Eins höfum við séð fyrir okkur að vera með mánaðarlega viðburði þar sem fólk hittist í stærri hópi.“

- Auglýsing -

Tekið er fram að sérstaklega sé leitað að karlmönnum í sjálfboðaliðastarf þar sem einungis ein kona er í sextán manna hópnum á Eiðum. Er aldursbilið breitt en yngsti einstaklingurinn er ríflega 22ja ára en sá elsti á sjötugsaldri.

Að sögn Róberts kann hópurinn vel við sig á Eiðum en hann kom fyrir rúmum mánuði eftir að hafa flúið stríðið í Úkraínu. „Fólkið er smám saman að komast í vinnu, sem er það sem það vill. Þannig er hluti hópsins núna í þjálfun hjá Alcoa Fjarðaáli. Því líður vel á Eiðum og er mjög ánægt.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -