Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Einstakur viðburður á Vestfjörðum: Fjórir af fimm voru vanhæfir

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps afgreiddi nýverið hugmyndir sínar um sérreglur um úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins.

Kemur fram á vef bb.is að sá einstæði atburður hafi gerst að fjórir af fimm sveitarstjórnarmönnum voru vanhæfir til þess að ræða og einnig afgreiða málið; viku af fundinum. Um var að ræða Lilju Magnúsdóttur, Jenný Láru Magnadóttur, Guðlaug Jónsson og Jón Inga Jónsson.

Því var svo að einungis einn sveitarstjórnarmaður sat eftir, Jóhann Örn Hreiðarsson varaoddviti; tveir varamenn, Magnús Óskar Hálfdánsson og Jónas Snæbjörnsson, tóku sæti á fundinum, en tveir aðrir varamenn þóttu einnig vanhæfir; voru ekki kallaðir til.

Fimmti varamaðurinn var fjarverandi og komst því ekki til fundarins. Og voru því aðeins þrír fulltrúar á fundinum undir þesum dagskrárlið.

Þessir þrír urðu sammála um afgreiðslu málsins; tókst því að afgreiða það.

Niðurstaðan sveitarstjórnar varð alveg sú sama og í fyrra; stjórnin vill að byggðakvótanum verði úthlutað til báta sem skráðir eru í sveitarfélaginu, og helmingur kvótans skiptist jafnt milli þeirra og hinn helmingurinn skiptist samkvæmt lönduðuð afla hvers báts á síðasta fiskveiðiári. Vill sveitarstjórnin að aflanum verði landað í Tálknafjarðarhöfn, en að vinnsluskylda verði afnumin enda engin fiskvinnsla í sveitarfélaginu, og heimilt verði að selja aflann á markaði.

- Auglýsing -

Kemur einnig fram að á síðasta fiskveiðiári hafnaði ráðuneytið kröfunni um afnám vinnsluskyldunnar; vísaði til þess að vinnsla væri í Vestur Barðarstrandarsýslu – svo sem á Patreksfirði, og urðu bátar frá Tálknafirði sem fengu byggðakvóta að gera samning við vinnslu á svæðinu og landa aflanum til vinnslu þar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -