Fimmtudagur 28. mars, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Fellabakstur er gjaldþrota: „Kannski var maður eins og Don Kíkóti að berjast við vindmyllurnar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fellabakstur var úrskurðaður gjaldþrota í vikubyrjun. Reksturinn er nú auglýstur til sölu.

Austurfrétt segir frá því að bakaríið í Fellabæ, Fellabakstur sé farið á hausinn. Segir fyrrum eigandi þess að reksturinn hafi verið þungur um langt skeið og margt hafi verið reynt til að bæta úr síðustu vikur en því miður hafi þær tilraunir mistekist.

„Við skiluðum inn beiðni um gjaldþrot í lok síðustu viku. Héraðsdómari tók sér ekki langað umhugsunarfrest heldur úrskurðaði félagið gjaldþrota á mánudag og skipaði skiptastjóra. Við náðum að borga út laun um síðustu mánaðamót. Það var léttir því það leit ekki vel út á tímabili skömmu fyrir áramót,“ segir Þráinn Lárusson, eigandi Fellabaksturs við Austurfrétt.

Fellabakstur var upphaflega stofnað árið 1968 en Þráinn keypti fyrirtækið snemma árs 2021 en fyrir átti hann meðal annars veitingahúsið Salt á Egilsstöðum og Hótel Valaskjálf og Hallormsstað.

Ýmsir þættir þyngdu róðurinn

„Reksturinn á bakaríinu var þarna orðinn mjög þungur. Það var ekki fyrir að þáverandi eigendur legðu sig ekki fram en einhverra hluta vegna gekk þetta ekki. Á sama tíma var ég með eigin hugmynd um að opna litla bakarísverslun, frekar en framleiða mest fyrir verslanir eins og bakaríið hafði gert. Mér fannst vera kallað eftir því úr samfélaginu. Þarna barst mér til eyrna að bakaríið stæði ekki vel og að það gæti orðið til góðs fyrir alla ef ég kæmi inn í það frekar en opna nýtt í beinni samkeppni. Við Björgvin (Kristjánsson, bakari og þáverandi eigandi Fellabaksturs) töluðum saman. Hann hafði áhuga á að selja það og varð úr þannig við tókum á okkur skuldbindingar bakarísins,“ sagði Þráinn í samtali við Austurfrétt.

- Auglýsing -

Þráinn tók fjótlega eftir kaupin til við að endurbæta kaffihús og bakarísbúðina í Fellabæ opnaði hann svo nýja búð á Egilsstöðum ásamt því að selja brauð til verslana. Segir hann að síðarnefndi þátturinn hafi ávalt verið erfiður bakaríinu:

„Þegar við komum inn er 90% framleiðslu bakarísins selt til endursölu, mest verslana. Við sáum ekki að það gengi upp fjárhagslega en gáfum því tækifæri því við töldum brauðið okkar betra en það sem flutt er að og er mögulega orðið tveggja til þriggja daga gamalt. Við lögðum í talsverðan kostnað við hönnun nýrra umbúða til að efla okkur í samkeppninni en það jók því miður ekki söluna eins og þurft hefði.“

Erfitt að keppa við verksmiðjubakaríin

- Auglýsing -

Bendir Þráinn á að í raun séu aðeins tvö bakarí, Gæðabakstur og Myllan sem framleiði næstum allt brauð sem pakkað sé í plastspoka og selt í verslunum hér á landi. Segir hann þau bakarí afar tæknivædd og hagkvæm. Þá hafi ýmislegt fleira þróast á verri veg fyrir bakarí eins og Fellabakstur.

„Ég held að við höfum verið orðið eina bakaríið á landsbyggðinni sem framleiddi brauð í plastpokum í verslanir. Í byrjun árs fengum við gagnrýni þegar við hættum að keyra brauði niður á firði þannig að verslanirnar gátu ekki fyllt á með okkar brauði eftir áramótin. Því miður gengur það ekki upp að reka bakaríið hér þannig að það selji brauð þegar hin eru ekki til, eftir löng frí eða stórar helgar.

Við getum ekki keppt við stóru verksmiðjubakaríin þar sem mannshöndin kemur nánast hvergi nærri heldur tölvur stjórna færiböndunum og brauðin eru send inn á frysti. Á sama tíma eru launahækkanir og síðan hefur allt korn hækkað vegna stríðsins í Úkraínu.

Síðan getum við nefnt „bake-off“, óbakað brauð sem flutt er inn frosið en bakað hérlendis. Við vitum að það eru bakarí sem kaupa frosið deig erlendis frá og hita upp en það hefur aldrei verið gert í Fellabakaríi. Við höfum nýtt okkur þetta á hótelunum, til dæmis með crossaint, enda er þetta að mörgu leyti hið fínasta brauð. Í crossaint þarf smjör og staðan er sú að á innfluttu smjöri eru háir tollar til að vernda innlenda mjólkurframleiðslu á meðan hægt er að flytja inn crossaint án tolla. Þarna er vitlaust gefið.

Við reyndum líka í tvö ár að leita víða um heim eftir handverksbakara, eða konditormeistara. Það gekk ekki og við erum ekki eina íslenska bakaríið í þeirri stöðu,“ segir Þráinn.

„Reyndum okkar besta“

Segir hann að undanfarin tvö ár hafi rekstur Fellabaksturs verið þungur. „Við fjárfestum mikið í breytingum en móðurfélagið virtist alltaf þurfa að leggja til meira fjármagn. Þetta var í miðju Covid-þar sem ferðaþjónustufyrirtæki fóru illa. Um mitt síðasta ár ákváðum við að stöðva allt fjárstreymi frá móðurfélaginu inn í bakaríið, það yrði að standa undir sér. Síðsumars ákváðum við að fara í ákveðnar breytingar á bakaríinu og á tímabili í haust fannst okkur vonarglæta. Undir áramótin kom í ljós að þetta væri búið og við yrðum að játa okkur sigruð. Mér finnst mjög sárt að svona hafi farið og við höfum tapað miklum peningum á þessu. Við reyndum okkar besta og ég var ánægður með á hvaða leið við vorum. Ég segi ekki að bakkelsið okkar hafi verið fullkomið en við vildum gera vel og Björgvin er flinkur bakari. Ég hef prófað ýmislegt í mínum rekstri og stundum þegar gengur vel telur maður sig ósnertanlegan. Við töldum að með öðrum rekstri, sem notar mikið brauð, væri hægt að reka bakaríið. Við vorum með matvælaframleiðslu sem við færðum inn í bakaríið til að samnýta ferðir og tæki. Þar vonuðum við að heimafólk keypti okkar vöru ef hún væri aðeins vandaðri frekar en það sem flutt væri að. Við hættum þessari framleiðslu nú í febrúar þegar við sáum að hún gengi ekki upp. Kannski var maður eins og Don Kíkóti að berjast við vindmyllurnar – að taka við deyjandi stétt til að reyna að blása í hana lífi.“

Eins og áður segir hefur skiptastjóri auglýst rekstur Fellabaksturs í heild til sölu en Þráinn vonast til að það takist að reka bakarí í þéttbýlingu á Fljótsdalshéraði, til frambúðar. „Það er rétt að bakaríum víða um heim fækkar en það er líka að koma upp ný tegund bakaría, kannski líkari þessum handverksbakaríum sem ég horfði til í byrjun. Fyrst og síðast þarf heimafólk að versla við bakaríið til að það gangi upp.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -