Höskuldur Ari Hauksson, íslenskur doktor í stærðfræði sagði skilið við fjármálaheiminn til þess að gerast vínbóndi í Sviss.
„Þetta er nú bara hobbí sem að varð allt of stórt allt í einu,“ sagði Höskuldur í viðtali sem birtist í fréttum stöðvar 2 í gærkvöldi. Höskuldur er nú staddur á landinu til þess að kynna vín sitt fyrir landanum og bjóða þeim, sem hafa áhuga og aldur til, að smakka. Segist hann hafa byrjað ræktunina á einu tonni af pinot noir þrúgum og búið til vín heima hjá sér, svoleiðis hafi það verið í tvö til þrjú ár, eða þar til hann tók við fyrstu vínekrunni.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2022/04/0CFF6699447637AD19EC7E02683259A37EC5DCC273A0BD1556EDED196E148173_713x0.jpg)
„Á fjórða árinu þá gerðist ég svo bara bóndi,“ segir hann og bætir við að starfið sé bæði skemmtilegt og hörkumikið púl. Nýverið fékk Höskuldur sér aðstoðarmenn við að halda grasinu á vínekrunum niðri. Aðstoðarmennirnir eru heldur óvenjulegir en um er að ræða svokallaðar dvergkindur. „Þetta eru dvergkindur. Þetta er minnsta kindakyn í heiminum. En það er svo áhugavert við það að það voru upphaflega víkingarnir sem komu með þessar kindur til eyjunnar Ouessant.“
Mörg vínanna sem Höskuldur bruggar hafa íslenskt nafn; til dæmis Horn, Rauð, Hvít, Sólskin en nýjasta vínið nefnist Perlur og er það freyðivín. Höskuldur verður á Hótel Hilton Nordica í dag milli tvö og sjö að bjóða þeim, sem hafa aldur til, að smakka vínin.