Lögreglan greinir svo frá:
Þegar þessi póstur er ritaður eru 7 sem eru vistaðir í fangageymslu. Tveir ökumenn stöðvaðir í akstri grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Tilkynnt um rán á bifreið, þegar frekari upplýsingar bárust var talað um að ógnað væri með skotvopni. Bifreiðin fannst seinn og einnig voru fjórir handteknir í heima húsi seinna um kvöldið sem eru grunaðir í málinu.
Tilkynnt um aðila í tökum dyravarða, þegar lögregla kom á vettvang var aðilinn mjög æstur og í mjög annarlegu ástandi sökum áfengis drykkju. Hann var vistaður í fangageymslu sökum ástands.
Tilkynnt um nytjastuldur á bifreið. Á meðan lögregla er að vinna í málinu kemur tilkynning um bifreiðina mannlausa í Hafnafirði. Eigandi endurheimti því bifreiðina.
Eldur í gaskút og grilli. Húsráðandi reyndi að slökkva í með slökkvitæki en án árangurs. Slökkvilið kom og slökkti eldinn.
Einn handtekinn og vistaður vegna líkamsárásar í heimahúsi. Rætt verður við hann þegar runnið verður af honum.
Tilkynnt um einn ofurölvi í miðbænum, svaraði hann ekki áreiti og var því fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar.
Tilkynnt um slys á skemmtistað. Aðili átti að hafa fallið niður 7 tröppur. Sjúkralið og lögregla send á staðinn. Þegar þetta er ritað er ekki vitað um ástand eða áverka hins slasaða.
Einn aðili handtekinn og vistaður með fíkniefni og mikið magn reiðufé á sér. Einnig ekki með nein skilríki á sér. Málið í rannsókn