Fimmtudagur 25. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Íslensk börn fá mögulega sprautuna fyrir jólin

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ekki liggur fyrir niðurstaða um það hvort eða hvenær hefja eigi bólusetningu barna á aldrinum 5 til 11 ára að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis.

Í viðtali við Morgunblaðið í hádeginu í dag sagðist Þórólfur mögulega niðurstöðu vera komna í málið fyrir lok næstu viku. Einnig er óvissa um það hvort öllum börnum á þessum aldri verði boðið bólusetning eða aðeins ákveðnum hópi.

Þá sé litið til þess hvort börn séu með undirliggjandi sjúkdóma eins og skoðað var þegar bólusetning hófst á fullorðnum.

Lyfjastofnun Evrópu heimilaði notkun á bóluefninu Com­irnaty frá Pfizer-Bi­oNTech við bólusetningu barna á þessum aldri og búist er við sendingu bóluefnisins til landsins í desember.

Þá hafa 152 greinst smitaðir af Covid á síðasta sólarhring. Eru 1.746 manns nú smitaðir í einangrun, þar af 478 börn á aldrinum 1 til tólf ára

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -