Föstudagur 29. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Ágústa Ragnhildur lést af völdum COVID-19: „Þakka þér fyrir öll 60 árin okkar saman“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ágústa Ragnhildur Benediktsdóttir, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 1. apríl, 78 ára að aldri. Ágústa Ragnhildur lést af völdum COVID-19 kórónaveirunnar.

Ágústa Ragnhildur skilur eftir sig eiginmann, Bjarna Líndal Gestsson, börn og barnabörn.

Ágústa Ragnhildur og Bjarni voru búsett á Ísafirði og hafa búið þar alla sína tíð, og eru þau bæjarbúum vel kunnug og mikil sorg í bænum vegna andláts Ágústu Ragnhildar.

„Ágústa var alveg einstaklega ljúf í allri viðkynningu,“ segir fjölskylduvinur.

Bjarni minnist konu sinnar og 60 ára þeirra saman:

„Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ágústa Ragnhildur Benediktsdóttir Eyrargötu 6, Ísafirði, andaðist á Landsspítalanum í Fossvogi 1.apríl 2020. Vegna aðstæðna verður jarðaförin auglýst síðar. Fjölskyldan vill koma á framfæri þakklæti til starfsfólks A7 á Landsspítala fyrir alúð og einstaka umönnun við erfiðar aðstæður. Elsku Ágústa mín, þakka þér fyrir öll 60 árin okkar saman.“

Hjónin Ágústa Ragnhildur og Bjarni

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -