Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Andlát – Einar Júlíusson söngvari: „Eitt helsta átrúnaðargoð unga fólksins á sjöunda áratugnum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Söngvarinn Einar Júlíusson er látinn; hann lést í faðmi fjölskyldu sinnar í nótt, 78 ára að aldri.

Einar var einn af stofnendum jafnfrægustu hljómsveitar Íslandssögunnar, Hljómar, og var Einar fyrsti söngvari hljómsveitarinnar.

Eftir ævintýrið með Hljómum var hann í hljómsveitinni Pónik og Einar í um aldarfjórðung, en í seinni tíð lagði hann áherslu á einsöng.

Fjölskylda Einars sendi frá sér tilkynningu sem má lesa hér að neðan:

„Eitt helsta átrúnaðargoð unga fólksins á 7. áratugnum og stórsöngvarinn Einar Júlíusson, lést í faðmi fjölskyldunnar síðastliðna nótt. Einar fæddist í Keflavík 20. ágúst 1944, hann bjó og starfaði þar alla tíð. Einar byrjaði á barnsaldri að syngja, hann var einn af stofnendum Hljóma og var fyrsti söngvari þeirra frægu hljómsveitar. Hann átti síðan farsælan 23 ára ferill með hljómsveitinni „Pónik og Einar“. Á síðari árum lagði hann áherslu á einsöng, þar sem hann söng við ýmsar athafnir. Einar söng á hljómplötu með Ellý Vilhjálmsdóttur og varð sú plata mjög vinsæll. Fræg lög sem Einar söng voru til dæmis lögin „Brúnaljósin brúnu“, „Léttur í Lundu“ og „Viltu dansa“.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -