- Auglýsing -
Arna Bára karlsdóttir sem búsett er á Spáni og hefur komið sér á framfæri meðal annars með erótískum myndum og á Onlyfans, skellti sér í teiti á dögunum og hitti hún þar breska plötusnúðinn Tomas Zanetti.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2021/07/216969088_4403904649674683_225018071683268526_n-300x297.jpg)
Tom Zanetti sem er plötusnúður, útgefandi, rappari og söngvari, hóf feril sinn aðeins 17 ára gamall með því að koma fram á hinum ýmsu klúbbum. Hann var í tygjum við hina íðilfögru raunveruleika- og samfélagsmiðlastjörnu Katie Price árið 2015 . Tom hefur hlotið bæði silfur og platínum fyrir tónlist sína. Hér má sjá myndbandið við lagið hans You want me.
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2021/07/217081513_566293261223435_6643958710607918065_n-191x300.jpg)
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2021/07/219822863_314410870121259_7453232989653187335_n-266x300.jpg)
Arna Bára hitti kappann á viðburði sem haldin var af O Beach Ibiza sem stendur reglulega fyrir teitum á þessum slóðum. Ekki var annað að sjá en að vel færi á með þeim Tom og Örnu Báru.
- Auglýsing -
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2021/07/217397077_2447929482017443_5863673933837506578_n-243x300.jpg)
![](https://www.mannlif.is/wp-content/uploads/2021/07/218156591_259109872232203_1274780946447690125_n-300x298.jpg)