- Auglýsing -
Stórfrétt dagsins er sú að söngstjarnan Ásgeir Trausti Einarsson og Hugrún Birta Egilsdóttir fegurðardrottning eru hætt saman.
Það er Smartland á mbl.is sem fyrst sagði frá þessum stórtíðindum.
Ásgeir Trausti var iðinn við kolann í apríl er hann ferðaðist um Evrópu með tónlist sína en Hugrún birta, sem varð Ungfrú Ísland 2015, keppti í keppninni Miss World í vetur.
Þau hófu samband árið 2019 en feta nú nýjar brautir í sitthvoru lagi.