Greint var frá því í gær að leikmenn sem taka þátt í heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Portúgal í handbolta sem hefst í næstu viku verði skikkaðir í reglulegar skimanir fyrir mótið og meðan á því stendur.
Komi í ljós að leikmenn greinist með veiruna er þeim skylt að fara þeir í 5 daga einangrun; mega ekki snúa aftur á gólfið fyrr en þeir greinast neikvæðir fyrir veirunni.
Margir leikmenn og þjálfarar hafa furðað sig á þessum reglum; einn þeirra er hinn margreyndi Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður, sem vill að reglurnar verði endurskoðaðar, og markvörðurinn frábæri tjáði sig um málið á Twitter reikningi sæinum í morgun:
„Eruð þið að grínast með þessar Covid-19 takmarkanir fyrir HM 2023?
Eruð þið að reyna að eyðileggja íþróttina okkar?
Handboltavinir, hvað eigum við að gera? Hvernig komum við í veg fyrir þetta?“