Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Blaðamannafélagið og Samtök atvinnulífsins undirrita kjarasamning

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kjarasamningar milli Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins hafa verið undirritaðir. Samningar félaga í BÍ höfðu verið lausir frá 1. janúar 2019 og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara síðastliðið vor. Fundahöld hófust að nýju eftir langt hlé á mánudaginn var.

„Samningurinn er afturvirkur til 1. mars og þá hækka öll laun og launataxtar um 17 þúsund krónur. Frá 1. apríl nk. hækka öll laun um 18 þúsund krónur og kauptaxtar um 24 þúsund krónur. Frá 1. apríl er launahækkunin þannig 35 þúsund að lágmarki fyrir alla og 41 þúsund fyrir þá sem eru á töxtunum,“ segir meðal annars í samantekt Hjálmars Jónssonar, formanns BÍ, á helstu atriðum sem í samningnum felast.

Mikilvægasta atriði samningsins þegar til lengri tíma er litið að mati Hjálmars er nýtt ákvæði um yfirvinnu.

„Ólaunuð yfirvinna hefur verið stærsta meinsemdin hvað varðar kjör blaðamanna á undanförnum árum, sem undantekningalítið vinna yfirvinnu án þess að fá hana greidda nema stundum, mismunandi eftir vinnustöðum. Afdráttarlaust er kveðið á um það að sé yfirvinna ekki greidd með venjulegum hætti er hægt að semja um að safna upp frídögum en fá yfirvinnuálagið greitt út með launum hverju sinni. Ef frídagar eru ekki teknir út fyrir 1. maí ár hvert eru þeir greiddir út.“

Upplýsingafundur um samninginn verður haldinn í húsnæði BÍ Síðumúla 23 klukkan 12.00 á morgun, föstudag, þar sem farið verður yfir helstu atriði hans. Farið verður að reglum sóttvarnarlæknis um samkomuhald og reynist þörf á verður annar fundur haldinn í hádeginu á mánudag.

Atkvæðagreiðsla um samninginn verður rafræn og hefst á hádegi þriðjudaginn 24. mars og stendur til hádegis föstudagsins 27. mars

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -