- Auglýsing -
Næstu dagar munu bera með sér blíðuveður um allt land, ef spá Veðurstofu Íslands gengur eftir. Dagurinn í dag verður víðast hvar sólríkur. Hitinn fer allt upp í 13 gráður í Borgarfirði í dag. Tveggja stafa hitatölur eru sá veruleiki sem búast má við næstu dagana.
Vorið er hugsanlega komið í allri sinni dýrð eftir kuldatíð og snjóafargan víða um landið.