Bubbi Morthens segir á Facebook-síðu sinni að einhverjir óprúttnir aðilar séu að misnota nafn hans á samfélagsmiðlum:
„Að gefnu tilefni; Instagram síðan mín er auðkennd með blárri stjörnu,“ skrifar kóngurinn og bætir við:
„Það eru nokrar síður í gangi með myndum af mér, fólkinu mínu, og óprúttnir aðilar blekkja fólk; biðja um pening, herja á konur; sumar jafnvel fallið fyrir þessu – tapað pening og bölvað mér í sand og ösku.“
Og Bubbi er einfaldlega kominn með nóg:
„Þetta er búið að vera svona í nokkur ár en hefur aukist. Endilega meldið þetta hyski.“