Föstudagur 17. maí, 2024
5.8 C
Reykjavik

Dópaður ökumaður með stolna kerru – Líkamsárás í Múlunum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ökumaður var stöðvaður í akstri í austurborginni með stolna kerru í eftirdragi. Maðurinn er  grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var handtekinn og læstur inni í fangaklefa. Hann mun svara til saka í morgunsárið.

Umferðarslys varð í miðborginn þegar maður á rafmagnshjóli hjólaði á gangandi vegfaranda. Báðir voru fluttir á bráðamóttöku til frekari skoðunar

Ökumaður var stöðvaður í akstri vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.

Tveir menn voru handteknir fyrir líkamsárás í Múlunum. Þeir voru vistaðir í fangageymslu.

Þrír einstaklingar voru handteknir yrir vopnalagabrot og að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Mennirnir voru færðir á lögreglustöð og látnir lausir að loknu viðtali. Á sömu slóðum var ökumaður stöðvaður í akstri vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku.

Eldur kom upp í  íbúðarhúsi í Kópavogi. Kviknað hafði í út frá þurrkara. Slökkvilið náði tökum á eldinum og reykræsti. Baðherbergið er mikið skemmt vegna brunans

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -