Edda Falak baráttukona og hlaðvarpsstjórnandi birti færslu og myndir á Twitter-síðu sinni. Þá skrifar hún „Æðislegt þetta “tröll” sem ég átti að vera. Þetta er ótrúlegt,“ og bendir á líkindi Tröllsins, sem kom fyrir á Þrettandagleði í Vestmannaeyjum, og sögupersónunar Litla Svarta Sambó, en bókin hefur sætt harðri gagnrýni sökum fordómafullra teikninga. Á Wikipedia er ritað um bókina:
„Sagan hefur á seinni tímum verið gagnrýnd fyrir rasisma vegna þess að nöfn sögupersóna eru sótt í skammaryrði yfir þeldökkt fólk og myndskreytingar í mörgum útgáfum þykja niðurlægjandi fyrir blökkufólk. Í nýrri útgáfum hafa bæði texti og myndir tekið breytingum.“
Á dögunum Mannlífi barst myndskeið frá þrettándakvöldinu í Vestmannaeyjum. Þar sást tröllskessa sem merkt hafði verið stórum stöfum Eddu.
Í þessu sama myndbandi má sjá aðra skessu, en sú var í raun nokkuð rasíska skrípamynd af araba. Skessurnar virðast hafa verið hluti af Þrettándagleði ÍBV en viðburðurinn var kynntur svo: „Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll, tónlist og margt fleira. Gangan hefst við Hánna og gengið verður upp Illugagötu, niður Höfðaveg og að malarvellinum þar sem hinar ýmsu kynjaverur heilsa upp á gesti.“
Æðislegt þetta “tröll” sem ég átti að vera. Þetta er ótrúlegt. pic.twitter.com/gNnOmIvodk
— Edda Falak (@eddafalak) January 9, 2023
Edda Falak var skessan: Rasískur og andfemíniskur Þrettándi í Vestmannaeyjum: „Láta börn taka þátt“