Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómófóbískan Guð“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Séra Sigurvin Lárus Jónsson er prestur við Fríkirkjuna í Reykjavík, og hann ritar pistil sem ber yfirskriftina: Jafnrétti til að elska.

„Í baráttusálmi Desmond Tutu segir: „Gæskan er öflugri en illskan, ástin gegn hatrinu fer, ljósgeislinn lýsir upp myrkrið, lífið af dauðanum ber. Sigurinn fæst, því ást Guðs er næst.“

Kristin kirkja í heiminum er margbreytileg og fjölbreytt. Þessi fjölbreytileiki kristinnar kirkju er í senn styrkur hennar og veikleiki. Fjölbreytileiki kirkjunnar verður til þess að fleiri geta fundið sér stað í samfélagi lærisveina Jesú og veikleiki hennar er sá að afstaða kirkna til trúarlegra og siðferðilegra mála getur tekið á sig myndir öfganna á milli.“

Hann bendir á að „afstaða kristinnar kirkju til hinsegin fólks er jafnframt fjölbreytt en hluti kristinna kirkjudeilda álíta samkynhneigð synd. Sú afstaða er í flestum tilfellum sett fram með þeim rökum að Biblían fordæmi samkynhneigð og að Guð elski syndarann, í þessu tilfelli hinsegin fólk, en fordæmi eða hati syndina, sem eru hinsegin ástir. Þeir textar Biblíunnar sem notaðir eru til að fordæma samkynhneigð eru annarsvegar úr Mósebókum Gamla testamentisins og hinsvegar úr bréfum Páls postula.“

Heldur áfram:

„Þá texta Gamla testmentisins sem notaðir eru til að réttlæta andúð á samkynhneigð er að finna í lagabálkum gyðingdóms en mörg þeirra laga eru okkur fullkomlega framandi og hafa aldrei verið haldin í heiðri í kristinni hefð. Það vægi sem að þessir textar Mósebóka hafa fengið til að fordæma hinsegin fólk er nýtilkomið og sprettur af þörfinni til að upphefja gagnkynhneigðarhyggju á kostnað þeirra sem ekki passa inn í mótið. Pálsbréfin standa okkur nær en afstaða Páls til samkynhneigðar í Rómverjabréfi og Fyrra Korintubréfi er langt frá því augljós. Páll fordæmir kynhegðun grísk-rómverskrar menningar, meðal annars drengjaást (pederastíu) og vændi karla, en gerir ekki ráð fyrir að um jafningja ástarsamband tveggja einstaklinga af sama kyni geti verið að ræða.“

- Auglýsing -

Séra Sigurvin segir að „það er sannfæring mín að sá boðskapur kristinna manna í samtímanum að samkynhneigð sé synd, sé valdbeiting og mannréttindabrot. Sú afstaða réttlætir og veldur gríðarlegri þjáningu í heiminum og kyndir undir ofsóknir og ofbeldi á hendur hinsegin fólki. Í ljósi sögunnar mun hún flokkast með stuðningi kirkna við þrælahald, kynþátta-aðgreiningu (apartheid) og kvenfyrirlitningu.“

Hann segir að íslenskt samfélag megi vera stolt af því að hafa horfst í augu við ofbeldisfulla fordóma sína á þeim 44 árum sem liðið hafa frá stofnun Samtakanna 78:

„Í dag tekur þriðjungur þjóðarinnar þátt í hátíðarhöldum Hinsegin daga og það er mikill minnihluti sem heldur uppi eða styður fordóma í þeirra garð. Sá minnihluti talar því miður oft í nafni Jesú Krists og réttlætir sig á grundvelli þeirrar guðfræði að Guð elski syndarann en hati syndina. Sú elska sem byggir á því að þú sem einstaklingur afneitir sjálfum þér og gerir lítið úr ást þinni til annara, er ekki elska heldur valdbeiting.“

- Auglýsing -

Séra Sigurvin er á því að „ást sem byggir á jafningjatengslum er guðleg og heilög, í hvaða mynd sem hún birtist, en valdbeiting og ofbeldi getur aldrei byggt á jafningjatengslum. Þess vegna getur kristin kirkja samtímis fagnað hinsegin fólki og ástum þeirra en fordæmt ofbeldi. Það er ekki synd að elska en það er synd að fordæma ást annarra og slík fordæming veldur og réttlætir ofbeldi gegn hinsegin fólki.

Í Jóhannesarbréfi er því haldið fram að boðorð kærleikans sé öllum boðorðum æðri og að sá sem þykist tala af kærleika en hefur hatur í huga geti ekki staðið í ljósinu. Þar segir: „Sá sem segist vera í ljósinu og hatar bróður sinn, hann er ennþá í myrkrinu. Sá sem elskar bróður sinn býr í ljósinu og í honum er ekkert er leitt geti hann til falls.”

Þegar kemur að grundvallar mannréttindum má engar málamiðlanir gera og afstaða kirkjunnar í heiminum til samkynhneigðar er ein af stóru syndum hennar í samtímanum.“

Og svo lokaorðin:

„Að lokum vil ég halda á lofti orðum Desmond Tutu, aldraða erkibiskupsins í Suður-Afríku, en hann var einn verndara alþjóðlegs átaks sem að Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu Þjóðanna hefur sett á laggirnar undir yfirskriftinni Free & Equal, eða Frjáls og jöfn. Átakinu er ætlað að berjast gegn fordómum og lagasetningum sem mismuna hinsegin fólki um allan heim. Á stofnfundinum líkti hann afstöðu kristinna til samkynhneigðar við þá sem á sínum tíma vörðu aðskilnaðarstefnu svartra í Suður-Afríku og um þá guðfræði segir hann:

„Ég fæ mig ekki til að tigna hómófóbískan Guð og ef mér yrði boðin vist á hómófóbískum himnum myndi ég afþakka.““

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -