Ótrúlegt atvik átti sér stað í banka í Rio de Janerio í Brasilíu fyrr í vikunni en þá reyndi kona að nafni Erika de Souza Vieira Nunes að hjálpa frænda sínum að fá bankalán nema hvað að frændi hennar var látinn.
Nunes, sem náðist á myndband við þennan hræðilega verknað, lét sem frændi hennar væri lifandi og rúllaði honum inn í bankann í hjólastól. Þar reyndi hún að fá lán upp á 480 þúsund krónur í nafni frænda hennar. Í myndbandinu sést hún tala við látinn frænda sinn og halda í hönd hans til að láta hann skrifa undir og margt fleira. Yfirvöld í borginni hafa staðfest að maðurinn sem hét Paulo Roberto Braga hafi verið látinn í nokkrar klukkustundir þegar Nunes rúllaði honum inn í bankann.
Nunes hefur verið handtekin fyrir misnotkun á líki og nokkra fjármálatengda glæpi. Þá stendur yfir rannsókn á dánarorsök Braga.
Hægt er að horfa á myndband af atvikinu hér.